Nei
þetta gengur nú ekki.
Hef ekki bloggað í háa herrans
tíð. En semsagt best að skella inn nokkrum
línum.
Kalt í
dag..........brrrr.
Árshátíð í skólanum hjá Björk í
kvöld og svo bara ball hjá henni til miðnættis, svo eins gott að ég
geti horft á eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu. Nei, gaman að
þessu og hún fékk nýjan kjól fyrir árshátíðina og utanlandsferðina.
Langt síðan
hún hefur leyft mér að velja
með sér eitthvað og kjóllinn er svo fínn á henni og hún svo falleg
stelpan mín.
Nú Hrafn vinnur mikið þessa
dagana. Fer útá golfvöll með Sturlu um hálf átta, vinnur þar til
hádegis og svo í Hole in one klukkan tólf og til sex þar. Var
kominn aftur útá golfvöll eftir kvöldmat í gær og býst við að þeir
taki svona törn eitthvað.
Freyr er búinn að fá sumarvinnu
í Landsbankanum. Getur labbað í vinnuna svo frábært
það.
Já ég er sko heppin með það
hvað þau eru dugleg og góð þessi börn mín. Sannarlega og veit það
vel og skammast mín sko ekkert fyrir að viðurkenna það. Þetta er
víst ekki neitt sjálfgefið að eiga svona
gullmola.
Nú svo er vinnudagur á morgun
og svo er ég komin í frí fram á miðvikudag. Ætla að hafa gaman að
því að dúllast heima, seinkaði fríinu mínu aðeins þar sem prófin
hjá Björk eru ekki fyrr en í næstu viku. Taka þrjá sumarleyfisdaga
til að leyfa henni Lísu að prófa að vera ein áður en ég sting af
til útlanda.
Trítill er vissulega
orðinn gríðarlega spenntur að hitta hana Susy..he. hann er nú
ljúfur eins og lamb en gæti nú fyrst aðeins gelt á hana og
látið hana vita hver ræður. Sé nú alveg fyrir mér að þær
frænkur verði nú pínu hræddar um hana....en gaman að fá þær
skvísur austur.
Nú annars er bara verið
að undirbúa ættarmót sem verður hér fyrir austan 13-15.júlí.
Svo þið sem ætlið að mæta eigið að láta mig vita eins fljótt
og þið vitið eitthvað.
Gott hljóð í mömmu og
pabba úti. Alsæl með sig í góða
veðrinu.
En hvernig væri nú að
commenta og leyfa mér að sjá hverjir eru að kíkja
hér.
ps. ef þið viljið heyra
fréttir héðan að austan þá er að fara inná ruv.is og finna
Svæðisútvarp ...
Bless
Hafdís